Fögnuðu fjögurra ára afmæli tveggja risapanda

Dýragarðurinn í Chongqing í suðvesturhluta Kína hélt einkar krúttlega afmælisveislu á miðvikudag. Hún var haldin í tilefni af fjögurra ára afmæli risapöndutvíburanna Yuke og Yu’ai sem búa í garðinum.Birnirnir gæddu sér á afmæliskökum úr ávöxtum og grænmeti og fengu tígristuskudýr í afmælisgjöf.Fjölmargir gestir lögðu leið sína í garðinn til að vera við veisluna. Þeir skemmtu sér vel, rétt eins og tvíburarnir.
Fögnuðu fjögurra ára afmæli tveggja risapanda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd