Versti mislingafaraldur í Bandaríkjunum í 35 ár

Aukin tortryggni í garð bóluefna og lægra bólusetningarhlutfall eru sagðar ástæður þess að mislingar hafa látið aftur á sér kræla í Bandaríkjunum á síðustu misserum.EPA / Javier AparicioRúmlega 2.300 tilfelli mislinga hafa verið greind í Bandaríkjunum það sem af er ári. Tilfellin eru nú þegar orðin fleiri en allt árið í fyrra. Þrír létust af völdum mislinga í Bandaríkjunum í fyrra. Bandaríska sóttvarnastofnunin, CDC, segir þetta versta mislingafaraldur í landinu í 35 ár.Sérfræðingar segja ástæðuna fyrir mikilli útbreiðslu mislinga mega rekja til lægra bólusetningarhlutfalls í landinu vegna aukinnar tortryggni í garð bóluefna.Fleiri tilfelli mislinga hafa greinst undanfarið eitt og hálft ár en árin 25 þar á undan.
Versti mislingafaraldur í Bandaríkjunum í 35 ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd