Bandaríkjaher stöðvaði för olíuflutningaskips í Ómanflóa í kvöld með því að skjóta á það. Herinn sakar áhöfn skipsins um að hafa ætlað að fara á svig við hafnbann Bandaríkjanna á íranskar hafnir. Tim Hawkins, talsmaður stjórnstöðvar hersins, segir við AFP-fréttaveituna, að áhöfnin hafi ítrekað verið vöruð við því að rjúfa bannið. Hún hafi ekki fylgt fyrirmælum og herinn því skotið á vélarrúm skipsins.Hawkins segir við New York Times að hann hafi fengið upplýsingar um að einhverjir í áhöfninni hafi særst en að hann geti ekki staðfest það. TRUMP RÆÐIR UM HARÐARI ÁRÁSIR Síðustu tvær vikur hafa Bandaríkin ráðist á Íran daglega með það fyrir augum að veikja getu Írana til að ráðast á kaupskip sem sigla um Hormússund sem liggur á milli Persaflóa og Ómanflóa. Donald Trump Bandaríkjaforseti fun