Aðildarríki Alþjóðlega sakamáladómstólsins, ICC, viku Karim Khan úr embætti aðalsaksóknara dómstólsins í dag. Fulltrúar 82 ríkja af 125 greiddu atkvæði með brottvikningu saksóknarans í leynilegri atkvæðagreiðslu.Ásakanir á hendur Khan litu fyrst dagsins ljós í maí 2024. Hann fór sjálfur í leyfi frá störfum í maí í fyrra.Khan var svo formlega leystur tímabundið frá störfum í júní eftir að eftirlitsnefnd dómstólsins komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði framið „alvarleg brot á skyldum sínum“ og sýnt af sér „verulega ósæmilega hegðun“.Það var svo í höndum aðildarríkjanna að staðfesta brottvikningu saksóknarans.Khan var sakaður um kynferðisbrot gegn konu sem starfaði sem aðstoðarmaður á skrifstofu hans. Í frétt BBC segir að hann hafi reynt að sannfæra konuna um að draga ásakanir sínar til b