Sádi-Arabar réðust á yfirráðasvæði Húta í Jemen

Stuðningsmen Húta komu saman á fjöldafundi í Jemen í vikunni til að mótmæla hernaðarbandalagi Sádi-Araba.AP / Osamah AbdulrahmanHernaðarbandalag Sádi-Araba gerði árásir á yfirráðasvæði Húta í Jemen í kvöld.Bandalagið segir árásirnar svar við árásum Húta á skip í Rauðahafi.Hútar segja tvo hafa særst í árásunum. Þær hafi hæft fjarskiptastöðvar í hafnarborginni Hodeidah.Fyrr í vikunni lýstu Hútar yfir hafnbanni á sádi-arabískar hafnir.Sádiarabískt flutningaskip sem var á siglingu um Rauðahaf skemmdist lítillega í dag eftir árás. Það hélt för sinni þó áfram eftir að í ljós kom að það væri vel sjófært og áhöfnin óhult.Þá gerðu Hútar árásir á í það minnsta tvö olíuflutningaskip á rauðahafi í vikunni.
Sádi-Arabar réðust á yfirráðasvæði Húta í Jemen

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd