Horft yfir Höfn í Hornafirði á Suðausturlandi, í átt að Vatnajökli.Jóhannes Jónsson / RúVÞað gengur í ákveðna norðvestanátt seint í kvöld og nótt á Suðaustur- og Austurlandi. Í athugasemd veðurfræðings Vegagerðarinnar segir að vindhviður geti náð allt að 30 metrum á sekúndu í vindstrengjum, allt frá Skaftafelli og austur á Egilsstaði.Veðrið getur því reynst ferðalöngum varasamt, sérstaklega þeim sem fara um á bílum sem taka á sig mikinn vind.Það dregur heldur úr vindi á þessum slóðum síðdegis á morgun. Það lægir svo nærri hádegi á sunnudag.