Hellissandur er á öðrum endanum við að undirbúa Almyrkvahátíðina, eða Eclipse Festival, sem verður haldin dagana 11.-15. ágúst. Bandaríska fyrirtækið IMXP stendur fyrir hátíðinni í samstarfi við íslenska teymið sem stóð að Secret Solstice hátíðinni í júní 2019. IMXP eltir uppi almyrkva og hefur haldið almyrkvahátíðir áður í Texas og Oregon.Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ segir erfitt að vita ekki hversu margir leggi leið sína í bæinn vegna almyrkvans. Skipuleggjendur almyrkvahátíðar á Hellissandi vonast til að Íslendingar bætist í hóp þeirra fjölmörgu erlendu gesta sem hafa boðað komu sína. FULLTRÚAR FRÁ 75 ÞJÓÐUM Á HÁTÍÐINNI Mikið verður um að vera alla hátíðardagana og fjölmargt tónlistarfólk leggur sitt af mörkum, bæði íslenskt og erlent. Vísindamenn og geimfarar verða einnig á staðnum. B