Ferðaþjónustuaðilar lýsa ófremdarástandi á Keflavíkurflugvelli vegna mikils biðtíma sem skapast hefur í kjölfar innleiðingar nýs kerfis í landamæraeftirliti hérlendis. Ferðamenn, sem séu margir hverjir á efri árum, séu margir að bíða í allt á þriðja tíma en lögregla segist kappkosta að manna eftirlitið. Nýtt sjálfvirkt kerfi verði vonandi komið í gagnið í haust.