Herjólfur klár fyrir Þjóðhátíð

Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja segir það mikið gleðiefni að búið sé að klára viðgerðina á Herjólfi og að hann sé aftur kominn á fullt skrið.„Skipið bilaði 12. apríl þannig að þetta er búið að vera svolítil þrautaganga en það munar gríðarlega að Herjólfur sé kominn á tvo mótora og geti siglt fulla áætlun.“Hún segir að viðgerðin hafi tekið of langan tíma og þegar skip bili sé hver dagur of langur.„Við því var ekkert að gera. Þannig að við erum bara fegin að þessu sé lokið en það þarf auðvitað bara að vera til betra viðbragð ef Herjólfur dettur út.“ BALDUR ANNAR EKKI FLUTNINGUM Breiðafjarðarferjan Baldur kom í stað Herjólfs á meðan hann var í viðgerð og segir Íris það hafa gengið vel en hann geti ekki annað flutningum á fólki, vörum og bílum.„Það er bara eitthvað sem þarf að
Herjólfur klár fyrir Þjóðhátíð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd