Skipverji sem er ákærður í Dettifossmálinu svokallaða segir að hann og samverkamaður hans hafi átt að fá 2,5 milljónir króna fyrir þátttöku í umfangsmiklu fíkniefnasmygli með gámaskipinu Dettifossi. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði frá byrjun mánaðar sem hefur verið birtur.Héraðssaksóknari gaf út ákærur á hendur fjórum mönnum 7. júlí í tengslum við smygl á rúmum 14 lítrum af amfetamínbasa til landsins með Dettifossi.Sex voru í fyrstu handteknir eftir að lögregla og tollgæsla fóru um borð í Dettifoss í Sundahöfn 6. apríl. Þremur var fljótlega sleppt en hinir þrír úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Sá fjórði var svo hnepptur í varðhald 24. apríl.Í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir skipverja segist hann hafa óttast samverkamann sinn sem fór með honum um borð í skipið. Háttsemin varðar 173. grein