Fimm á sjúkrahúsi eftir árekstur á Grindavíkurvegi

Bílslys varð á Grindavíkurvegi síðdegis og voru fimm fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Þetta segir Gunnar Jón Ólafsson, bakvaktsstjórnandi hjá Brunavörnum Suðurnesja. Hann segir áreksturinn hafa verið nokkuð harðan.Þrír sjúkrabílar voru sendir á staðinn auk dælubíls og lögreglu. Útkallið barst laust eftir hálf fimm.Vísir greindi fyrst frá.Daníel Karlsson, varðstjóri hjá slökkviliði Grindavíkur, segir að slys á fólki hafi ekki verið alvarleg. Annar bíllinn hafi verið á leið frá Bláa lóninu og ekið í veg fyrir hinn sem var á leið til Grindavíkur. Ferðamenn voru í öðrum bílnum.„Þetta virðist hafa sloppið nokkuð vel,“ segir Daníel sem telur þó að bílarnir séu ónýtir. Þeir voru fluttir burt með kranabíl.Talsverðar annir hafa verið hjá Brunavörnum Suðurnesja í dag. Vinnus
Fimm á sjúkrahúsi eftir árekstur á Grindavíkurvegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd