Finnskir bændur stóðu frammi fyrir meiriháttar breytingum á rekstrarumhverfi og búskaparháttum þegar Finnland varð aðili að Evrópusambandinu 1995. En hvernig hefur þeim farnast síðan þá? Framleiðendum í landbúnaði í Finnlandi hefur fækkað verulega, býlin eru orðin stærri, sérstaklega í mjólkurframleiðslu, en þegar á heildina er litið hefur landbúnaðarframleiðsla ekki minnkað - þvert á væntingar fræðimanna í upphafi.Málsvarar bænda og þeir sem þekkja til í þessum geira segja að bæði tímabundnar og varanlegar undanþágur í landbúnaði sem finnsk stjórnvöld sömdu um við Evrópusambandið - og styrkirnir sem bændur fá á grundvelli þessara undanþága - séu ein af forsendum þess að landbúnaður haldi velli í Finnlandi. MÓTMÆLTU Í AÐDRAGANDA AÐILDAR Finnskir bændur mættu oftar en einu sinni á trakto