Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað byggingu tveggja nýrra útvarða fyrir landtökubyggðir á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum. Tveir Ísraelsmenn og fjórir Palestínumenn létust í átökum á Vesturbakkanum í dag, nærri landtökubyggðinni Havat Gilad, skammt frá palestínska þorpinu Tell, á svæði sem Ísralesmenn hafa haldið frá ólöglegri hertöku í sex daga stríðinu 1967.Netanjahú hét því í kjölfar átakanna í morgun að hraða uppbyggingu útvarðanna, sem eru hernaðarleg byggðarlög sem hafa gjarnan verið notuð til að undirbúa stofnun varanlegra ísraelskra landtökubyggða.Um hálf milljón Ísraelsmanna búa á landtökubyggðum á Vesturbakkanum, til viðbótar við 230.000 manns í austurhluta Jerúsalem.Netanjahú flýgur til Bandaríkjanna á þriðjudag til að funda með Donald Trump forseta