Kaffistofa Samhjálpar fær að vera áfram í húsnæði Fíladelfíusafnaðarins út ágúst. Helgi Guðnason prestur segir að tími sé til kominn að borgin finni varanlegt húsnæði fyrir kaffistofuna.„Við höfum fengið ósk þess efnis að framlengja dvölina um einn mánuð, að vera sem sagt út ágústmánuð og við erum búin að segja já við því,“ segir Helgi.„En við erum í þeirri erfiðu stöðu að vilja allt fyrir kaffistofuna að gera en þetta er auðvitað bráðabirgðalausn sem átti bara að vera til tveggja mánaða og eru núna orðnir níu, í lok ágúst verða þeir tíu þannig að við eigum mjög erfitt með að halda áfram óbreyttu ástandi.“Kaffistofan varð húsnæðislaus í október í fyrra þegar húsnæði hennar við Borgartún var rifið. Fíladelfíusöfnuðurinn sló skjólhúsi yfir kaffistofuna á meðan opnun nýs húsnæðis við Grensásv