Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur konu sem handtekin var á Keflavíkurflugvelli í maí fyrir að reyna að smygla rúmum 18 kílóum af kókaíni til landsins.Konan, sem er erlendur ríkisborgari, hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan málið kom upp.Þetta staðfestir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur og staðgengill lögreglustjórans á Suðurnesjum.Hún getur ekki sagt til um hvort 18 kíló sé mesta magn kókaíns sem reynt hafi verið að smygla um flugvöllinn. Það sé þó óvenjumikið.Samkvæmt Öldu hefur þunginn verið óvenjumikill á Keflavíkurflugvelli undanfarin tvö til þrjú ár. Hún segir markaðinn virðast óþrjótandi.Eftirspurn sé mikil sem drífi bæði framboð og innflutning. Þá hafi stórar sendingar tekið við af minni sendingum.