Sjúkraliðafélag Íslands lýsir yfir skýrum stuðningi við starfsmann á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum sem var handtekinn vegna andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu.Í febrúar fengu tveir starfsmenn Hraunbúða réttarstöðu sakbornings eftir að andlát konu á tíræðisaldri var tilkynnt til lögreglu. Rannsókn á málinu var hætt fyrr í vikunni vegna þess að ekki var talinn grundvöllur til að halda henni áfram.„Málið er afar alvarlegt. Félagsmaður okkar var sviptur frelsi, fékk réttarstöðu sakbornings og bjó um tíma við grun um aðild að einu alvarlegasta broti sem einstaklingur getur verið sakaður um. Slík reynsla getur haft djúpstæð áhrif á heilsu, fjölskyldulíf, starfsferil og mannorð, þótt rannsókn sé síðar hætt,“ segir í yfirlýsingu Sjúkraliðafélagsins.„Alvarleg atvik í