Ný innkeyrsla á að auðvelda aðkomu að Keflavíkurflugvelli

Isavia hefur opnað nýja innkeyrslu við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli sem ætlað er að bæta aðkomu. Miklum framkvæmdum sem hafa staðið yfir á bílastæðum, þar sem komufarþegar yfirgefa flugstöðina, síðustu mánuði fer senn að ljúka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.Búið er að byggja yfir helstu gönguleiðir á svæðinu í þeim tilgangi að verja farþega fyrir veðri og vindum á leið sinni að eða frá þeim samgönguleiðum sem þeir hafa valið.Á næstu vikum verður framkvæmdum á komubílastæðunum að mestu lokið og nýjar og skýrar merkingar komnar upp.Á meðfylgjandi mynd sést hvernig aðkomunni er háttað eftir breytingarnar.
Ný innkeyrsla á að auðvelda aðkomu að Keflavíkurflugvelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd