Útileguþyrstir landsmenn ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi um allt land um helgina. Í Reykholti í Borgarfirði verður klassísk tónlistarhátíð, í þrítugasta sinn.„Þetta er þrjátíu ára gömul hátíð, það er hátíðardagskrá svolítið því það er 30 ára afmæli. Þetta er dásamlegur bíltúr upp í Reykholt í Borgarfirði sem er alveg upplagt í þessu veðri sem er búið að lofa okkur,“ segir Þórunn Ósk Marínósdóttir, listrænn stjórnandi Reykholtshátíðarinnar. HVAMMSTANGI OG HÚSAVÍK Á Hvammstanga nær Eldur í Húnaþingi hámarki á laugardaginn en hátíðin hófst á mánudag. Búist er við fjölda gesta.„Erfitt að segja en ég myndi ætla svona 5000 manns komi og renni í gegn og líti við. Fólk er svona aðeins að uppgvöta Hvammstanga. Við erum ekkert lengra frá en þetta og þetta er ekkert verra en eitthva