Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir mjög alvarlegt að hlutfall hjúkrunarfræðinga á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum sé langt undir viðmiðum til að tryggja öryggi.Embætti landlæknis gerði alvarlegar athugasemdir við aðbúnað á heimilinu í skýrslu sem unnin var eftir tilkynningu um alvarlegt atvik fyrr á árinu. Þar voru meðal annars gerðar athugasemdir við mönnun.Hlutfall hjúkrunarfræðinga á Hraunbúðum er 12% en lágmarkshlutfall til að tryggja öryggi íbúa er 20%.„Það er auðvitað vel þekkt og vel rannsakað að rétt mönnun hjúkrunarfræðinga eykur öryggi þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Þetta er mjög dapurleg frétt að heyra en kemur því miður ekki á óvart,“ segir Helga Rósa. GAGNRÝNIR AÐ SKULDINNI SÉ SKELLT Á STARFSME