Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir þörf á samtali og samstöðu atvinnulífs og launþega í ljósi nýjustu verðbólgumælinga. Verði kjarasamningar endurskoðaðir í haust verði húsnæðismálin undir.Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir ljóst að forsendur kjarasamninga séu brostnar.Fátt virðist geta komið í veg fyrir að verðbólga, sem nú mælist 5,3% verði yfir 4,7% viðmiði kjarasamninganna, svokallaðra Stöðugleikasamninga, þann 1. september þegar heimild er til að endurskoða þá. Hvað eru Stöðugleikasamningarnir? * Síðustu stóru kjarasamningarnir voru gerðir á almennum markaði í mars 2024. * Þeir eru gjarnan kallaðir Stöðugleikasamningar og byggja á samstöðu atvinnulífsins, stjórnvalda og launafólks til að auka kaupmátt og lækka vexti og verðbólg