Innbrotafaraldur: Reykjavíkurborg býður íbúum á fund um öryggi

Reykjavíkurborg býður íbúum borgarinnar og fólki í verslun og þjónustu á samráðsfund þar sem öryggi í borginni verður rætt.Þrír hafa verið handteknir í tengslum við innbrotafaraldur í miðborginni. Borgarstjóri hélt samráðsfund á þriðjudaginn þar sem aukið myndavélaeftirlit í miðborginni var meðal annars rætt.Borgarstjóri opnar fundinn sem verður í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 17 þriðjudaginn 28. júlí.Eyþór Víðisson, sérfræðingur í öryggismálum, fer með fræðsluerindi og ýmis öryggismál verða rædd, þar á meðal nágrannavarsla. Gestum stendur til boða að fá nágrannavörslulímmiða til að setja í glugga.Fulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir frá samfélagslögreglunni.
Innbrotafaraldur: Reykjavíkurborg býður íbúum á fund um öryggi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd