Fuglar eða fólk: Evruseðlarnir fá yfirhalningu

Seðlabanki Evrópu svipti á fimmtudag hulunni af nýrri hönnun sem mun prýða evruseðlana. Tíu ólíkar útfærslur hafa verið birtar, en síðar á árinu verður ein þeirra valin.Þetta er í fyrsta sinn frá því evruseðlarnir voru teknir í notkun árið 2002 sem hönnun þeirra er breytt að ráði.Hönnunin á sér nokkurn aðdraganda. Rúmlega fjögur ár eru liðin síðan áformin voru kynnt. Síðan þá hafa hinir ýmsu rýnihópar komið sér saman um nokkur ásættanleg þemu í samráði við almenning.Útgáfurnar tíu, sem hafa verið fullhannaðar, eru ýmist í þemanu Fuglar og vatn eða Evrópsk menning. Verði síðarnefnda þemað fyrir valinu verða andlit Mariu Callas, Ludwig van Beethoven, Mariu Curie, Miguel de Cervantes, Leonardo da Vinci og Berthu von Suttner á seðlunum.Liðin eru 45 ár frá því íslenska seðlaröðin var kynnt til
Fuglar eða fólk: Evruseðlarnir fá yfirhalningu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd