Farþegar Strætó á höfuðborgarsvæðinu fá nú betri rauntímaupplýsingar

Farþegar Strætó á höfuðborgarsvæðinu fá nú nákvæmari upplýsingar um ferðir og komur strætisvagna.Þetta er gert með nýrri uppfærslu, sem tekur mið af hjáleiðum og fleiri þáttum sem hafa áhrif á akstur, og samræmingu á kerfum sem halda utan um rauntímaupplýsingar, samkvæmt tilkynningu frá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins.„Betri rauntímaupplýsingar eru liður í því að bæta stöðugt þjónustu við farþega Strætó. Á síðustu misserum hafa ýmsar nýjungar verið innleiddar sem stuðla að aðgengilegri og áreiðanlegri almenningssamgöngum,“ segir í tilkynningunni.Nýjungarnar eru meðal annars að nú geta farþegar greitt fyrir ferðir með greiðslukorti um borð í strætisvögnum og skipulagt ferðir með kortasmáforritum eins og Google Maps eða Apple Maps.
Farþegar Strætó á höfuðborgarsvæðinu fá nú betri rauntímaupplýsingar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd