Varað við snörpum hviðum á Suðausturlandi

Vegagerðin varar við miklu hvassviðri á suðaustanverðu landinu í kvöld og í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Þar segir að í kvöld gangi í ákveðna norðvestanátt með vindhviðum að 30 metrum á sekúndu í vindstrengjum, allt frá Skaftafelli og austur á Egilsstaði.Aðstæður verða því varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og þau sem draga tengivagna. Vegagerðin hvetur fólk til að kanna skilyrði vel áður en haldið er af stað í ferðalög á þessum slóðum.Síðdegis á morgun dregur heldur úr vindi og er búist við að lægi nærri hádegi á sunnudag.RÚV / Víðir Hólm Ólafsson
Varað við snörpum hviðum á Suðausturlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd