Orkumálaráðherrar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu skrifuðu á miðvikudag undir tvo samninga um kjarnorkumál; um samvinnu ríkjanna um nýtingu Sáda á kjarnorku til orkuframleiðslu og eftirlit með henni.Samningurinn er til þrjátíu ára og er ætlað að uppfylla „orkuþörf“ olíuveldisins Sádi-Arabíu, samkvæmt tilkynningu bandaríska orkumálaráðherrans, Chris Wright, en í langtíma efnahagsáætlun Sáda er gert ráð fyrir töluverðri raforkuframleiðslu með kjarnorku svo þeir geti aukið olíuútflutning að sama skapi. SÁDAR FÁ MÖGULEGA AÐ AUÐGA EIGIÐ ÚRAN Fæst ríki sem reka kjarnorkuver auðga sitt eigið úran, meginreglan er sú að þau flytja kjarnorkueldsneytið inn frá stærri kjarnorkuveldum og lúta ströngu eftirliti Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar.Í þessum samningi er opnað á mögulega undanþágu frá þessa