Tvær ungar stúlkur töldu sig vera fastar inni í Egilshöll eftir lokun í gærkvöld. Þær höfðu farið á salernið eftir bíóferð og ekki komist út úr höllinni. Lögreglumenn aðstoðuðu stúlkurnar sem komust út um neyðarútgang.Þetta segir Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi.Ekið var á dreng á reiðhjóli. Hann bar sig vel en var hruflaður og reiðhjól hans því næst eyðilagt.Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir gærkvöld og nótt.Ökumaður bifhjóls lenti í umferðarslysi. Hann var með meðvitund þegar sjúkraliða bar að garði en var fluttur af vettvangi til aðhlynningar. Annar var fluttur til aðhlynningar með sjúkrabíl eftir að hafa dottið af rafhlaupahjóli. Hann kenndi sér meins á öðrum fæti.Nokkur fjöldi ökumanna var stöðvaður í umferðinni, þar á meðal voru fjórir kærðir f