Ferjan Baldur hefur siglingar í Breiðafirði á ný í dag eftir að hafa siglt milli lands og Vestmannaeyja síðustu vikur. Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir fyrirtæki heimamanna hafa tekið á sig mikið högg vegna fjarveru ferjunnar.„Við erum mjög ánægð með það að Baldur hefji siglingar aftur í dag. Hann kom heim í gær og við búumst við því að Baldur muni hjálpa ferðaþjónustufyrirtækjum í Stykkishólmi að ná dampi aftur eftir að hafa tekið á sig mikið högg þegar Baldur var tekinn úr siglingu fyrr í sumar,“ segir Jakob.„Auðvitað er það almennt þannig að við viljum hafa Baldur hjá okkur. Við viljum hafa hann í siglingum og það er virkilega ánægjulegt að fá hann til baka.“ ÞUNGT HÖGG FYRIR FYRIRTÆKI Í FERÐAÞJÓNUSTU Að sögn Jakobs hefur fjarvera Baldurs reynst