Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur dregið til baka stefnur gegn blaðamönnum New York Times og fjölskyldumeðlimum þeirra vegna fréttaflutnings miðilsins um nýju forsetaflugvélina sem Donald Trump fékk gefins frá konungsfjölskyldu Katar. Alríkisdómari hafði skömmu áður gengið hart fram gegn lögmönnum ráðuneytisins varðandi það hvernig staðið hefði verið að stefnunum og sagði það illa gert.