Lögregla leiðbeindi tveimur ungum stúlkum sem töldu sig vera fastar inni í „samkomumannvirki“ eftir lokun í gærkvöld eða nótt. Þær komust út um neyðarútgang.Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir gærkvöld og nótt.Ekið var á dreng á reiðhjóli. Hann bar sig vel en var hruflaður og reiðhjól hans því næst sem eyðilagt.Ökumaður bifhjóls lenti í umferðarslysi. Hann var með meðvitund þegar sjúkraliða bar að garði en var fluttur af vettvangi til aðhlynningar. Annar var fluttur til aðhlynningar með sjúkrabíl eftir að hafa dottið af rafhlaupahjóli. Hann kenndi sér meins á öðrum fæti.Nokkur fjöldi ökumanna var stöðvaður í umferðinni, þar á meðal voru fjórir kærðir fyrir að virða ekki bann við vinstri beygju, og tveir þjófnaðir í verslunum rötuðu á borð lögreglu.