Í flestum landshlutum verður skýjað í dag með lítilsháttar vætu af og til en eftir hádegi léttir til sunnan- og vestantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast sunnanlands.Smálægð hreyfist til austurs, skammt suður af landinu. Breytileg og síðan norðlæg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu.Á morgun verður norðlæg átt sömuleiðis, 3 til 10 metrar á sekúndu en 8 til 15 austanlands. Skýjað og dálítil rigning af og til fyrir norðan og austan en yfirleitt léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Hiti helst eins.Á sunnudag er útlit fyrir hæga norðlæga átt. Á norðvestanverðu landinu verður skýjað með köflum framan af degi en lengst af þurrt. Bjartviðri sunnan heiða. Hiti 11 til 17 stig.Eftir helgi má búast við lítilli úrkomu og fremur hægum norðlægum áttum. Hiti verður yfirleitt á bilinu 8 til 19 stig, hlýjast sunna