Umferð um Hormússund ekki minni síðan í fyrri hluta maí

Aðeins eitt olíuflutningaskip sigldi um Hormússund í gær. Skipið, sem var á leið til Rizhao við austurströnd Kína, er af næststærstu gerð olíuflutningaskipa, svokallaðri VLCC (very large crude carrier). Búist er við því að það nái höfn um miðjan næsta mánuð. Umferð um sundið hefur ekki verið svona lítil síðan í fyrri hluta maí.Í fyrradag sigldu þrjú olíuflutningaskip um sundið, samkvæmt gögnum greiningarfyrirtækisins Kpler sem lesa má um í frétt norska ríkisútvarpsins, NRK.Árásir Bandaríkjahers á Íran síðustu nætur hafa einkum verið gerðar með það að markmiði að veikja getu Írana til að ráðast á kaupskip í Hormússundi. Íranar hafa ráðist á nokkur skip á síðustu vikum því skipin sigldu um siglingaleiðir sem þarlend stjórnvöld höfðu ekki samþykkt. Stjórnstöð Bandaríkjahers hélt því fram efti
Umferð um Hormússund ekki minni síðan í fyrri hluta maí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd