Sex börn særðust í árás Rússa á Zaporizhzhia

25 hið minnsta særðust í loftárás Rússa á borgina Zaporizhzhia í Úkraínu í gærkvöld. Sex börn særðust í árásinni.Nokkur heimili og barnaskóli urðu fyrir skemmdum í árásinni. Þá varð vatnsveitukerfi kjarnorkuvers borgarinnar einnig fyrir árásinni. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin segir kælikerfi kjarnakljúfa orkuversins enn vera öruggt. ÚKRAÍNUHER BEINIR ÁRÁSUM AÐ VÖRUHÚSUM NETVERSLUNARRISA Úkraínuher gerði drónaárás á vörugeymslu nærri Sankti Pétursborg í nótt. Eldur kviknaði í húsinu og fréttamenn AFP segja reyk hafa lagt yfir borgina.Staðarmiðlar segja vöruhúsið í eigu rússneska netverslunarrisans Wildberries. Úkraínuher hefur gert fjölda árása á vöruhús fyrirtækisins á síðustu dögum, þar með talið í grennd Moskvu.Fjöldi Rússa sem býr á afskekktum stöðum, fjarri verslunum, reiðir sig á W
Sex börn særðust í árás Rússa á Zaporizhzhia

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd