Veðrið lék við íbúa höfuðborgarsvæðisins síðdegis í gær en þegar fór að kvölda tók himininn á sig hvítgulan lit og yfir lagðist dulúðlegt mistur. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir í færslu á vefsíðu sinni Bliku að líklegast sé um reykjarmistur frá skógareldum í Kanada að ræða.Vindáttin var suðvestlæg og loftið barst því af hafi. „Útiloka má saltmóðu, en hún er haust- og vetrarfyrirbæri samfara stormum á Grænlandshafi,“ bendir Einar á. „Reykjarmistur frá skógareldunum í Kanada er haldbærasta skýringin. Enda sýna bakreikningar loftagna með Hysplit í 500 og 1.500 m hæð yfir Reykjanesskaga í kvöld uppruna þeirra vestan frá víðáttum Kanada, þaðan sem það barst um fyrir 5-10 dögum.“ GÆTI GERST OFTAR SAMFARA HLÝNUN JARÐAR Þá benda loftgæðamælingar á suðvesturhorninu ekki til þess að mi