Malbika hluta Reykjanesbrautar á morgun

Horft í austurátt eftir Reykjanesbraut, skammt frá afleggjaranum inn á Vatnsleysuströnd.RÚV / Ragnar VisageVegagerðin vekur athygli á því að á morgun, föstudag, verður unnið að malbikun á Reykjanesbraut í austurátt fram hjá Vatnsleysustrandarvegi. Vegurinn verður því þrengdur í eina akgrein fram hjá vinnusvæðinu og lokað verður inn á Reykjanesbraut frá Vatnsleysustrandarvegi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir frá klukkan átta í fyrramálið til klukkan átta annað kvöld.Á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, segir annars að viðgerðir og aðrar vegaframkvæmdir eigi sér nú stað víða um land þessa dagana. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.
Malbika hluta Reykjanesbrautar á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd