Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar var kölluð út að skemmtiferðaskipi vegna farþega sem lenti í alvarlegu slysi. Hann var hífður upp í þyrlu skömmu fyrir klukkan ellefu í kvöld og fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri. Líðan hans er sögð stöðug. Skipið var skammt frá Húsavík.