Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna elds í smáhýsi við Fiskislóð á Granda.Að sögn Stefáns Más Kristinssonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu, logaði talsvert í húsinu þegar slökkvilið bar að garði.Tveir til þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang og hófst slökkvistarf þegar í stað. Búist er við að slökkvilið nái fljótt tökum á eldinum.Ekki liggja fyrir upplýsingar um eldsupptök eða hvort slys hafi orðið á fólki. Talið er að enginn hafi verið í húsinu þegar eldurinn kviknaði.Mynd úr safni.RÚV / Ragnar Visage