Alvarlegt slys í skemmtiferðaskipi

Alvarlegt slys varð í kvöld um borð í skemmtiferðaskipi sem talið er vera um 13 sjómílur norður af Húsavík.Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út og stefnt er að því að flytja þann slasaða á sjúkrahús. Tilkynning barst til Landhelgisgæslunnar klukkan tuttugu mínútur í níu í kvöld.Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Landhelgisgæslunni hafa ekki borist frekari upplýsingar um slysið.RÚV / Kristófer Óli Birkisson
Alvarlegt slys í skemmtiferðaskipi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd