Sólin lætur sjá sig í borginni um helgina

Íbúar á vesturhluta landsins eru langþreyttir á sólarleysi, en nú eru breytingar í vændum því veðurspáin um helgina er ekki sem verst. Theodór Freyr Hervarsson veðurfræðingur segir breytingarnar nú þegar hafnar.„Við sjáum að það er svona aðeins farið að glitta í bláan himin hérna hjá okkur. Það verður þurrt og bjart svona að mestu leyti sunnan- og vestanlands næstu tíu daga, getum við sagt, og fyrir norðan og austan er ekki að sjá neina vætutíð þannig lagað séð.“Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa þó ekki látið þrotlausar rigningar stoppa sig. Í Krónunni verslaði fólk á grillið þrátt fyrir vætuna og í miðbænum sóttu borgarbúar kaffihús.Rigningin hefur ekki haft mikil áhrif á aðsókn í Húsdýragarðinn og sagðist einn ungur gestur meira að segja kjósa rigninguna fram yfir sólina.
Sólin lætur sjá sig í borginni um helgina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd