Þó að sagan um Ódysseif sé þrjú þúsund ára gömul er enn þrætt um túlkun hennar. Ný kvikmynd Christopher Nolan um Ódysseifskviðu hefur slegið í gegn og kveikt áhuga margra á sögunni á ný.Skipbrot, eineygðir risar og tælandi dísir eru allt hluti af sögu Ódysseifs sem nú hefur fengið nýtt líf í kvikmynd leikstjórans Christophers Nolans, The Oddyssey, sem skartar skærustu stjörnum Hollywood um þessar mundir. Ódysseifskviða Nolans hefur verið í bígerð síðustu þrjú ár og vakið mikla athygli. TÚLKUN EMILY WILSON HAFI FARIÐ FYRIR BRJÓSTIÐ Á MÖRGUM Nokkrar útgáfur eru til af Ódysseifskviðu. Sveinbjörn Egilsson þýddi hana á íslensku á 19. öld. Kvikmynd Nolands er byggð á útgáfu Emily Wilson frá árinu 2018. Eiríkur G. Kristjánsson, kennari við fornmáladeild Menntaskólans í Reykjavík, segir að þess