Nota dróna gegn veirufaraldri af völdum moskítóflugna

Yfirvöld í Sri Lanka hafa skorið upp herör gegn moskítóflugum sem bera með sér beinbrunasótt (e. Dengue fever). Til þess hafa þau kallað til herinn sem notar dróna til að finna vatnspolla sem safnast hafa uppi á þökum bygginga og aðra æxlunarstaði moskítóflugna. Þá hafa lögreglumenn farið milli heimila í leit að stöðum þar sem flugurnar gætu fjölgað sér. Um 11 þúsund æxlunarstaðir hafa verið fjarlægðir í mánuðinum.Veiran sem veldur sjúkdómnum hefur dregið 56 manns til dauða í Sri Lanka og sýkt 77 þúsund í viðbót. Meira en fjórðungur tilfella hafa greinst í júlí. Faraldurinn er sá versti í næstum áratug, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins, BBC.Heilbrigðisyfirvöld á Srí Lanka telja að fjölgun tilfella megi rekja til hvirfilbyls sem fór yfir eyjuna í desember. Hvirfilbylurinn hafi dreif
Nota dróna gegn veirufaraldri af völdum moskítóflugna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd