Til stendur að saga upp steypta gangstétt sem Kristján „Fiskikóngur“ Berg lagði sjálfur mikla vinnu í við verslunina sína á Sogavegi þangað sem mörgum hefur þótt gott að sækja sér í soðið síðan Kristján opnaði fyrir sautján árum. Hann les borgarstarfsmönnum pistilinn á Facebook og vill senda þá í sveit.