Embætti landlæknis gerir miklar athugasemdir við aðbúnað á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landlæknir skilaði nýverið skýrslu um úttekt á Hraunbúðum eftir tilkynningu um alvarlegt atvik á stofnuninni. Grunur var um að andlát konu á tíræðisaldri hefði borið að með saknæmum hætti en rannsókn málsins hefur verið felld niður. Eyjafréttir greindu fyrst frá.Í skýrslunni eru gerðar athugasemdir við mönnun á Hraunbúðum. Hlutfall hjúkrunarfræðinga er 12% samanborið við 20% lágmarkshlutfall til að tryggja öryggi íbúa. Æskilegt hlutfall er 27%.Þá er hlutfall faglærðs starfsfólks í heildina langt undir því sem æskilegt er. Hlutfall faglærðs starfsfólks á Hraunbúðum er 27% en lágmarkið er 57% og æskilegt hlutfall 78%. Fjöldi umönnunarklukkustunda á hvern íbúa er þó innan viðm