Eigiendur víkingaskips, sem notað var við tökur á stórmyndinni The Odyssey, segja farir sínar ekki sléttar í samskiptum við kvikmyndaverið Universal sem framleiðir myndina. Skipið skemmdist töluvert við tökurnar samkvæmt eigendunum, þar á meðal á skut og mastri, og kvikmyndaverið hefur ekki greitt fyrir tjónið. SEGJA KVIKMYNDAVERIÐ HAFA HEITIÐ AÐ BORGA ALLAN KOSTNAÐ Víkingaskipið Glad av Gillberga er eftirlíking af Skuldelev 5, skipi frá 1050 sem fannst í Hróarskeldufirði á sjöunda áratug síðustu aldar. Það er í eigu Vikingaleden, samtaka í Vermalandi í vesturhluta Svíþjóðar.Skipið var byggt á árunum 1995 til 1998 og hefur siglt um Norðursjó, Eystrasaltið og alla leið til Kanada.Universal leigði skipið í hálft ár meðan tökur á stórmynd leikstjórans Christophers Nolans, The Odyssey, stóð