Birna Viðarsdóttir á bænum Norður-Hvoli í Mýrdalshreppi lá nýlega fjóra daga á spítala í einangrun með uppköst og niðurgang og með næringu og tvær tegundir af sýklalyfi í æð.Ástæðan er sú að hún smitaðist af bakteríunni Campylobacter eftir að hafa haldið á stormmávsunga en Birna er mikil áhugamanneskja um fugla og allt sem að þeim snýr. „Ég er nú búin að jafna mig en læknarnir á sjúkrahúsinu vissu ekki hvernig ég hefði smitast, engin skýring. En þegar ég fór til afleysingalæknisins í Vík kveikti hann á því hvað hefði gerst og spurði, „Hefur þú verið nálægt mávfuglum nýlega?”, og ég var fljót að svara, jú, ég hef verið að vesenast með stormmávsungana sem voru í hreiðri á gömlu haugsugunni hjá okkur,” segir Birna.„Ég er fegin að það kom skýring og nú mun ég passa mig betur og hvet fólk til a