Fjármálaráðherra segir lítið hægt að gera til að halda verðbólgu innan viðmiða sem sett voru í síðustu kjarasamningum. Hann segir kaupmáttaraukningu þó hafa verið í samræmi við markmið samningana og vonar að það komi í veg fyrir harðan kjaravetur.Verðbólga mælist 5,3% í júlí, sem er aukning um 0,1 prósentustig milli mánaða. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir hækkunina mjög litla og það séu helst olíuverðshækkanir sem drífi hana áfram.„Það sem við sjáum þarna er auðvitað alls ekki það sem við vorum að vonast til að sjá en það sem drífur áfram þessa mælingu er áfram það sama og hefur gerst núna í undanförnum mælingum að þetta eru olíuverðshækkanir sem eru að koma annaðhvort með beinum eða óbeinum hætti inn í verðlag. Undirliggjandi verðbólguþrýstingur á Íslandi, í i