Forstjóri Lyfjastofnunar segir innflutning ólöglegra peptíða hingað til lands mikið áhyggjuefni. Fólk eigi ekki að kaupa lyf sem því sé ekki ávísað.Sýnishorn af ólöglegum peptíðum sem tollgæslan lagði hald á og sendi til greiningar erlendis innihéldu mikil óhreinindi. Ómögulegt var að staðfesta hvort hluti sýnishornanna innihéldi virku lyfjaefnin sem þau voru sögð innihalda.Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir notkun efna af þessu tagi sérlega varasama.„Í fyrsta lagi var mjög lítið af peptíðum í því sem sagt var að væri peptíð. Það voru mjög mikil óhreinindi sem voru einhver efni sem maður veit ekki hvað er. Þetta getur valdið miklum aukaverkunum og haft áhrif á til dæmis lifur og nýru. Og þetta er sérstaklega hættulegt þegar fólk er að sprauta sig, sem virðist vera