Þingmenn Dúmunnar, neðri deildar rússneska þingsins, samþykktu í gær lög um rússneska ríkisborgara sem búa erlendis en eiga yfir höfði sér lögsókn heima fyrir á pólitískum grundvelli. Lögin frysta bankareikninga, afnema eignarrétt og afnema rétt til þjónustu sendiráða. Á grundvelli laganna verður umsóknum viðkomandi um alþjóðlegt vegabréf eða vottun á skjölum á borð við erfðaskrár hafnað.Vyacheslav Volodin talsmaður Dúmunnar sagði lögin miðuð að þeim sem valda Rússlandi skaða. „Við erum að tala um öfgafólk og föðurlandssvikara. Þá sem hafa í mörg ár gert allt til að eyðileggja ríkið. Þá sem réttlæta nasisma, móðga hermenn okkar og embættismenn en fela sig fyrir refsingu í öðrum löndum,“ sagði Volodin áður en atkvæðagreiðslan um lögin hófst.Lögin gilda einnig um Rússa sem hefur þegar verið