Maður og kona voru handtekin á Keflavíkurflugvelli í maí fyrir að reyna að smygla rúmum 18 kílóum af kókaíni til landsins. Það er eitthvert mesta magn kókaíns sem reynt hefur verið að smygla um Keflavíkurflugvöll.Konan hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að málið kom upp. Landsréttur staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald yfir henni 13. júlí. Hún er erlendur ríkisborgari sem hefur engin tengsl við landið og er því talin hætta á því að hún reyni að komast úr landi fái hún að ganga laus á meðan mál hennar er til meðferðar. HVAÐST EKKI HAFA VITAÐ AF FÍKNIEFNUNUM Tollverðir höfðu afskipti af konunni þegar hún kom til Íslands. Jákvæð svörun á ketamíni og kókaíni kom á vegabréfi hennar og í kjölfarið voru töskur hennar og manns sem hún sagði kærasta sinn settar í gegnumlýsingarvél. Þá fannst