Eins og lýðum má ljóst vera ganga Íslendingar að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi til að taka afstöðu til þess hvort stjórnvöld eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Málið er afar umdeilt en menn virðast ekki einu sinni geta komið sér saman um það hvort um eiginlegar samningaviðræður sé að ræða.