Milljónamæringar í Bretlandi hafa skrifað opið bréf til Andys Burnhams forsætisráðherra þar sem þeir biðja hann um að skattleggja sig meira. Meðal þeirra sem skrifa undir bréfið eru Gary Lineker, fyrrverandi fótboltamaður og fjölmiðlamaður, leikstjórinn Richard Curtis og rithöfundurinn Val McDermid. „VIÐ ELSKUM ÞETTA LAND OG VILJUM AÐ ÞAÐ NÁI ÁRANGRI Hópurinn Þjóðræknir milljónamæringar stendur fyrir bréfinu og alls skrifuðu 120 vel stæðir Bretar undir það. Þar kemur fram að þeir hafi efni á skattahækkuninni.„Við erum ekki að tala um hærri skatta á þá sem þurfa að vinna fyrir tekjunum sínum daglega heldur á þá allra ríkustu sem fá auð sinn af tekjum sem þeir eiga.“Í bréfinu kemur fram að með því að skattleggja þá allra ríkustu yrði samfélagið jafnara. Þar er einnig hvatt til þess að auð